Skólaráð
Skólaráð er starfandi við skólann og er það samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Nú þarf að skipa nýtt skólaráð fyrir næstu tvö starfsár og því er spurning hvort einhverjir eru ekki til í að gefa kost á sér sem fulltrúar foreldra.
Verkefni skólaráðs:
a. fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
b. fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
c. tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
d. fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
e. fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
f. fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað,
g. tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar.
Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Miðað skal við að skipað sé í ráðið í upphafi skólaárs fyrir lok septembermánaðar.
Kosningum skal haga á eftirfarandi hátt:
a. tveir fulltrúar kennara skulu kosnir á kennarafundi,
b. einn fulltrúi annars starfsfólks skal kosinn á starfsmannafundi þess,
c. tveir fulltrúar foreldra skulu kosnir samkvæmt starfsreglum foreldrafélags, sbr. 9. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla,
d. tveir fulltrúar nemenda skulu kosnir samkvæmt starfsreglum nemendafélags, sbr. 10. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla,
e. skólaráð skal sjálft velja einn fulltrúa úr hópi íbúa í grenndarsamfélaginu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra.
Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Varamenn geta tekið sæti í skólaráði á einstökum fundum í forföllum aðalmanns. Varamaður tekur fast sæti við varanleg forföll eða missi kjörgengis aðalmanns, nema nýr sé kjörinn eða valinn í hans stað.
Fulltrúi í skólaráði missir hæfi sitt til setu í ráðinu ef tengsl hans við skólann rofna.