Opnun myndlistarsýningar
Í dag var páskasýning nemenda Hríseyjarskóla, Augnakonfekt, formlega opnuð á Verbúðinni 66 við góðar undirtektir gesta. Á opnuninni mættu gestir til að skoða afrakstur vinnu nemenda síðustu vikna.
Þema sýningarinnar er kökur og bakkelsi og endurspeglast það í litríkum og skapandi verkum nemenda. Gestir nutu þess að skoða fjölbreytt úrval verka, en alls eru 18 listaverk og einn skúlptúr til sýnis.
Nemendur komu sjálfir að skipulagi sýningarinnar og ákváðu að hafa hana sem sölusýningu. Því gefst gestum kostur á að kaupa verkin og styðja um leið ferðasjóð nemenda.
Sýningin Augnakonfekt stendur yfir um páskana og eru allir velkomnir að koma og njóta þess sem nemendur Hríseyjarskóla hafa fram að færa.



