Skólaslit

Skólaslit Hríseyjarskóla fóru fram föstudaginn 5. júní við góða þátttöku nemenda, foreldra og annarra gesta.

Dagskráin hófst á gítartónleikum nemenda þar sem þeir fluttu fjölbreytt lög. Að þeim loknum fóru fram skólaslit þar sem skólaárinu var formlega slitið. Gestum gafst síðan kostur á að skoða sýningu á verkum nemenda sem endurspegluðu fjölbreytt og skapandi starf vetrarins. Að lokum bauð Foreldrafélag Hríseyjarskóla upp á grillaðar pylsur.

 

Hríseyjarskóli þakkar nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir gott skólaár og óskar öllum gleðilegs sumars.

 

 

 

 

 

Comments are closed.