Listakonan Amanda Maciel Antunes sem dvelur í Gamla – Skóla kom og heilsaði uppá nemendur í hreyfi-stundar tímanum í dag. Hún fékk þau með sér í skemmtilegt verkefni sem hún kallar „Exquisite Corpse„, sem er eins konar framhalds mynd. Hún skipti nemendum í 3 hópa og fékk hver hópur að teikna og lita einn part af veru sem þau fengu að ráða hvernig liti út. Afrakstur verkefnisins voru þrjár furðuverur sem við komum fyrir uppá vegg í holinu í skólanum. Nemendur skemmtu sér vel við þessa vinnu og mun hún kíkja aftur við næsta þriðjudag með nýtt verkefni. Við bíðum spennt eftir því.
Archive for 10. október, 2018
Leikskóli
Skemmtileg uppákoma í leikskólanum, krakkarnir fundu könguló á gólfinu og gerðu hana að gæludýrinu sínu í ca eina klukkustund. Hún fékk að sjálfsögðu nafnið Kalli litli og vakti hún mikla lukku, hún fékk að fara í barbie, aka um á bíl. fljúga á bréfaskutlu og leika með risaeðlunum. Hennar líf var nú ekki ýkja langt og var frekar mikil sorg þegar að hún lést……..