Skólasetning Hríseyjarskóla verður mánudaginn 24. ágúst 2020 kl 10:00 á sal skólans.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður skólasetningin með öðru sniði en venjulega, þ.e. foreldrum og forráðamönnum er ekki boðið á skólasetninguna.
Skólasetning Hríseyjarskóla verður mánudaginn 24. ágúst 2020 kl 10:00 á sal skólans.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður skólasetningin með öðru sniði en venjulega, þ.e. foreldrum og forráðamönnum er ekki boðið á skólasetninguna.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem fela m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar svo stjórnendur og starfólk geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Þar sem búið er að staðfesta COVID-19 smit á Íslandi viljum við benda á viðbragðsáætlun Hríseyjarskóla við heimsfaraldri, en hana má finna á heimasíðu skólans undir skólastarfið, áætlanir. Hægt er að fylgjast með gangi mála á vef Almannavarna og Landlæknis.
Viðbragðsáætlunina má finna hér
Hríseyjarskóli hefur unnið nokkur verkefni nú í september tengd plastlausum september. Við skoðuðum m.a. hvað getum við gert til að minnka notkun á plasti. Í framhaldi af því saumuðum við fjölnota ávaxta- og grænmetispoka og gáfum Hríseyjarbúðinni til notkunnar. Við saumuðum okkur einnig fjölnota samlokupoka til eigin nota.
Skólaárið fer vel af stað með hefðbundnum hætti. Skólaleikarnir voru á sínum stað með ýmsum leikjum, spurningakeppni og myndaratleik um þorpið. Nú er fyrstu lotunni lokið og var útikennsla á dagskrá ásamt sundkennslu. Eitt verkefnið í útikennslunni var að búa til myndir úr þeim efnivið sem fannst á skólalóðinni og ramma verkin inn með njóla. Nemendur unnu í pörum og höfðu frjálst val um myndefni. Hér má sjá afraksturinn.
Hríseyjar- og Grímseyjarskóli hafa unnið að sameiginlegu þróunarverkefni „Leiðtogar í eigin námi“ síðan 2016. Út frá þessu verkefni kviknaði hugmyndin að halda svokallaðar Sudbury vikur í skólunum sem er í anda Sudbury Valley School í Bandaríkjunum en eftir þeirri hugmyndafræði er unnið í rúmlega 60 skólum víðsvegar um heiminn. Samkvæmt þeirri hugmyndafræði skipuleggja nemendur sitt eigið nám út frá sínum áhugamálum í eina viku, setja upp stundarskrá sem þau tengja við lykilhæfni aðalnámskrár. Þau þurfa einnig að finna leiðir til að leysa viðfangsefnin sem þeir völdu, taka lýðræðislegar ákvarðanir í félagi við starfsmenn skólanna og vinna á sínum forsendum. Núna stendur yfir fjórða Sudbury vikan og eru nemendur Grímseyjarskóla í Hrísey að þessu sinni og taka þátt í vikunni. Það sem er öðruvísi við þessa viku er að nú er henni skipt upp með helgi þ.e. tveir dagar í síðustu viku og þrír í þessari einnig máttu nemendur á unglingastigi mæta seinna á morgnana eða á milli 08.00 og 10.00 og vera þá lengur á daginn en enginn hefur nýtt sér þann kost.
Hér má sjá ýmis verkefni sem unnið er að í yfirstandandi Sudbury viku í skólanum. Búið er að tjalda á sal skólans og hýsir tjaldið slímverksmiðju og verslun, nuddstofa er upp á efri hæðinni, stúdíó í einni stofunni og heilmikil listsköpun í handmenntastofunni. Frábært að sjá hvað krakkarnir eru að njóta sín og gera frábæra hluti.
Í lok síðustu viku færði foreldrafélag Hríseyjarskóla skólanum að gjöf vélmennin Dash og Dot, leikskóladeildin fékk Beebot. Þetta er kærkomin gjöf sem kemur sér vel í upplýsingatækni og eru nemendur mjög ánægðirmeð tækin. Við þökkum kærlega fyrir góða gjöf.